Einfalt og ódýrt verkskráningarkerfi.
Vinnutími er einfalt og ódýrt verkskráningarkerfi.
Einfalt og ódýrt verkskráningarkerfi.
Gott utanumhald yfir tíma- og kostnaðarskráningar getur skipt sköpum í rekstri fyrirtækja. Við þekkjum sjálf að hafa ekki nægjanlega gott utanumhald yfir þessa hluti og þekkjum því vel vandræðin sem geta komið upp þegar safna þarf saman upplýsingum af fjölda minnismiða, tölvupóstum og Excelskjölum.
Þess vegna settum við Vinnutíma í loftið, við þekkjum vandamálið og leituðum að lausn. Við erum sannfærð um að Vinnutími.is geti sparað þér sporin og einfaldað þessa vinnu.
Kerfið hentar bæði fyrirtækjum sem og einyrkjum. Einfalt er að stofna aðgang, skrá inn upplýsingar um verkefni og skrá tíma. Þar sem um vefviðmót er að ræða er hægt að skrá upplýsingar í gegnum snjallsíma jafnóðum.
Smelltu hér til að sjá hvernig kerfið virkar. Hægt er að fá 2 mánaða ókeypis reynsluaðgang (sjá neðst á síðu).
Mánaðargjald
Uppgefin verð eru án/vsk
Hafðu samband ef þú þarft frekari upplýsingar um Vinnutíma eða ef þú vilt fá 2 mánaða ókeypis prufuaðgang*.
*Við þurfum nafn og kennitölu fyrirtækis sem og nafn þess sem mun sinna kerfinu sem stjórnandi. Einnig þarf að gefa upplýsingar um fjölda notenda.